Leikur kvöldsins

Úr myndasafni
Úr myndasafni

Leikur kvöldsins að þessu sinni er leikur Jötna og Húna sem fram fer á Akureyri og hefst klukkan 19.40. Þetta er síðasti leikurinn í karlaflokki í bili þar sem nú verður tekið stutt hlé vegna ferðar U20 ára landsliðsins til Spánar en þar mun það taka þátt í HM-móti á vegum Alþjóða Íshokkísambandsins.

Síðasti leikur liðanna var jafn og spennandi og endaði í framlengingu og vítakeppni þannig að þeir sem skella sér í höllina á Akureyri í kvöld geta átt von á spennandi og skemmtilegum leik. Leikmannalistar liðanna koma upp síðdegis í dag en bæði lið verða ágætlega mönnuð ef fer fram sem horfir. 

Mynd: Ásgrímur Ágústsson

HH