Leikur kvöldsins

Úr leik liðanna fyrr í vetur
Úr leik liðanna fyrr í vetur

Leikur kvöldsins að þessu sinni er leikur Bjarnarins og Skautafélags Reykjavíkur í karlaflokki og fer hann fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.40. Liðin hafa mæst þrisvar sinnum áður á þessu tímabili og í þeim leikjum hefur Björninn tvisvar sinnum farið með sigur af hólmi en SR-ingar einusinni. Leikirnir hafa verið jafnir því heildar markatalan úr þeim er 10 - 8 Birninum í vil. 

Bjarnarmenn sem lögðu UMFK Esju í síðasta leik geta með sigri náð fimm stiga forskoti á SR-inga og Esju. Esja ætti þó leik til góða gegn Víkingum en sá leikur fer fram um komandi helgi. SR-ingar á hinn bóginn töpuðu með eins marks mun fyrir VíkingÖum um liðna helgi en eitthvað vantaði uppá að liðið væri fullmannað þar sem hluti leikmanna var staddur erlendis.

Öll lið deildarinnar hafa spilað þriðjung leikja sinna áður en til leiksins í kvöld kemur og því nóg enn af stigum eftir í pottinum.

Mynd: Hafsteinn Snær

HH