Leikur kvöldsins

Enn er töluvert í að jólafrí gangi í garð hjá hokkífólki en í kvöld mætast í meistaraflokki karla lið Húna og SR Fálka. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst klukkan 19.30.

Bæði lið unnu sinn síðasta leik, annarsvegar unnu Húnar leik sinn gegn Jötnum 5 - 3 en SR Fálkar unnu Jötna í síðasta leik sínum 6 - 3. Einhverjir af þeim leikmönnum sem hafa verið fastamenn í Húnum þetta tímabilið, s.s. einsog Dave MacIsaac og Sergei Zak voru staddir í Rússlandi síðustu daga svo óvíst er hvort þeir verða með í kvöld. 

HH