Leikur í Laugardalnum í kvöld klukkan 19:00

Í kvöld klukkan 19:00 eigast við í Skautahöllinni í Laugardal, Skautafélag Reykjavíkur og Skautafélag Akureyrar. Þetta er leikur í 4 umferð. SA þarf á sigri að halda til þess að styrkja stöðu sína í deildinni en SR er ennþá ósigrað á þessari leiktíð. SA mætir til leiks með sitt sterkasta lið en Jan Kobezda þjálfari liðsins er komin með leikheimild og svo er Birkir Árnason komin heim frá Svíþjóð. Þessir menn eiga eflaust eftir að styrkja lið norðanmanna. Víst er að leikurinn í Laugardalnum í kvöld verður hörku spennandi.