Leikur í kvennaflokki í kvöld

Á Akureyri fer fram í kvöld viðureign SA og Bjarnarins og hefst leikurinn kl. 21:30.  Þetta mun vera í fjórða skiptið sem liðin mætast í vetur.  Björninn vann fyrsta leikinn örugglega, sem fram fór á Akureyri en SA svaraði með tveimur sigurleikjum í röð í Egilshöllinni í síðasta mánuði.  Leikur kvöldsins verður án efa spennandi en aðaldómari leiksins er Jens C. Fossaberg frá Danmörku.