Leikur fimmtudag kl. 20:00

Skautafélag Akureyrar tekur á móti nágrönnum sínum frá Hrísey á fimmtudagskvöld kl. 20:00.  Liðin hafa mæst í tvígang í vetur.  Í fyrri viðureigninni þurfti framlengingu til að skera úr um sigurvegara en þá vann SA með gullmarki frá Clark McCormick.  Þeirri síðari lauk með 5 - 1 sigri SA.
Viðureignir liðanna eru venjulegar líflegar en vel spilaðar og því um að gera fyrir íshokkíáhugamenn að skella sér í Skautahöllina á Akureyri og skemmta sér yfir góðum hokkíleik.
Mynd:  Ási ljósmyndari