Leikur dagsins.

Þriðji leikur Íslands í heimsmeistarakeppninni U20 verður leikin klukkan 15.00 að okkar tíma. Í þetta sinnið eru það Króatar sem eru mótherjar okkar, en þeir hafa líkt og við, tapað einum leik og unnið einn. Eftir því sem ég heyrði á okkar mönnum á staðnum þá eru Króatarnir með mjög gott lið og því verður á brattann að sækja fyrir okkar menn. Góðu fréttirnar eru hinvegar þær að allir okkar leikmenn eru heilir og góð stemming er í hópnum og menn staðráðnir í að gera sitt besta. Við reynum að sjálfsögðu að birta fréttir af leiknum hér á síðunni um leið og þær berast okkur. Þess má svo geta að undir U20 linknum bætist við með óreglulegu millibili dagbók frá fararstjórn.