Leikur dagsins - úrslit

Leik Íslendinga og Króata er nýlokið og endaði hann 8 - 6 Króötum í vil. Það var Emil Alengard sem skoraði fyrsta mark Íslendinga. Í öðrum þrðjung bættu Steinar Páll Veigarsson, Patrick Eriksson og Gunnar Guðmundsson mörkum við og staðan eftir þá lotu var 6 - 4 Króötunum í vil. Með miklu harðfylgi tókst Íslenska liðinu að jafna leikinn í 6 - 6 með mörkum frá Emil Alengard. Því miður gaf liðið eftir og skoruðu Króatarnir tvö síðustu mörkin. Annað markið kom eftir að við höfðum skipt markmanni okkar útaf, í stað leikmanns, í örvæntingafullri tilraun til að jafna leikinn. Á morgun leikur liðið við Ungverja, sem eru með langsterkasta liðið í riðlinum og verður þar við ramman reip að draga.