Leikur dagsins

Við munum ekki fjalla í löngu máli um leik dagsins heldur benda á umfjöllun mbl.is um leikinn. Leiknum lauk með sigri Íslands en íslenska liðið gerði 3 mörk gegn einu marki Ný-Sjálendinga. Það má með sanni segja að sigurinn hafi verið síst of stór hjá íslenska liðinu enda hafði það töluverða yfirburði á öllum sviðum leiksins. Sérstaklega gekk liðinu vel að verjast einum færri en brottvísanir voru þó helst til of margar á íslenska liðið. Spilað var á öllum línum og vonandi kemur það til með að vinna með okkar liði þegar líður á mótið. Við minnum á myndatengilinn frá Kristjáni Maack en hún er uppfærð með reglulegu millibili

Sjá umfjöllun mbl.is:

Upphitun

Lýsing

Viðtal.

Myndina tók Kristján Maack.

HH