Leikur Bjarnarins og Narfa kl 16:00 í dag í Egilshöll

Í dag sunnudag klukkan 16:00 mætast Björninn og Narfi í meistaraflokki karla í Egilshöll. Fyrirfram er búist við því að Björninn eigi að vinna en Narfarnir hafa sýnt að þeir geta verið skeinuhættir. Við hvetjum alla hokkíáhugamenn að fjölmenna í Egilshöll.