Annar leikur í úrslitum kvenna verður leikin á morgun þriðjudag í Skautahöllinni í Laugardal, klukkan 19:45 ef veður leyfir. SA stúlkur leiða einvígið eftir 1-0 sigur á fyrir norðan síðastliðinn laugardag. Veðurguðir eru ekki að gera okkur lífið auðveldara þessa dagana. Gular veðurviðvaranir í nótt og afleit spá fyrir fimmtudaginn þegar leikur 3 á að fara fram. Stuðst verður við reglugerðir okkar sem kveða á um að ákvörðun um frestanir verður tekin klukkan 09:00 á keppnisdag. Ef útlit er fyrir að veður sé að ganga niður er mögulegt að fresta ákvörðun til klukkan 11:00 á keppnisdegi. Tilkynningar verða birtar jafnóðum og ákvarðanir liggja fyrir á vef sambandsins.