Leikmannapróf

Enn höldum við áfram hinum geysivinsælu leikmannaprófum. Próftöku á Akureyri er lokið og hjá Skautafélagi Reykjavíkur er hún langt komin. Hjá Birninum er töluvert eftir að prófa en gert er ráð fyrir að góður hluti af því klárist næstkomandi fimmtudag. Tekin verður saman tölfræði milli flokka og vonandi verður síðan hægt að nýta hana í að efla kunnáttu leikmanna í reglum leiksins. Prófunum verður svo dreift aftur í félögin í næstu viku með svörum þannig að félögin geti, ef þau vilja, nýtt þetta sem hluta af reglulærdómi.

Fyrir áhugasama má geta þess að fjórir leikmenn tróna nú á toppnum og eru þar á ferðinni tveir leikmenn SA og tveir úr SR.

HH