Leikmaður Bjarnarins Bergmundur Elvarsson í leikbanni í næsta leik.

Í leik Bjarnarins og SA 17.09.2005 hlaut leikmaður Bjarnarins númer 13 Bergmundur Elvarsson Leikdóm (MP) fyrir að sparka niður andstæðing. Það staðfestist hér með að leikmaðurinn fær eins leiks bann í samræmi við leikreglur sem hann þarf að taka út í næsta leik sem að lið hans leikur.