Leikir kvöldsins.

Leikir kvöldsins að þessu sinni eru tveir og báðir í meistaraflokki karla.

Á Akureyri mætast Jötnar og Víkingar og hefst leikurinn klukkan 19.30. Jötnar afrekuðu á síðasta tímabili að ná einum sigri og einu jafntefli gegn Víkingum. Sömu stigatölu tókst þeim að hafa af SR-ingum á síðasta tímabili og á endanum urðu þeir í 3ja sæti íslandsmótsins sem verður að teljast ágætis árangur. Um síðustu helgi unnu þeir síðan Húna í æsispennandi leik og því aldrei að vita hvernig þeim tekst til í kvöld. 

Í Egilshöllinni mæstast síðan Björninn og Húnar og hefst sá leikur einnig klukkan 19.30. Húnar hafa átt á brattann að sækja og tapað fyrstu tveimur leikjum sínum en æfingin skapar meistarann. Kópur Guðjónsson mun ekki leika í kvöld þar sem hann var fyrr í dag úrskurðaður í eins leiks bann. 

HH