Leikir kvöldsins

Leikir kvöldsins samkvæmt mótaskrá voru tveir en nú þegar hefur öðrum leiknum verið frestað.

Leik Jötna og SR Fálka sem fyrirhugaður var klukkan 19.30 í Skautahöllinni á Akureyri hefur verið frestað vegna slæmrar færðar og veðurspár.

Hinn leikur kvöldsins fer hinsvegar fram en þá mætast Skautafélag Reykjavíkur og Björninn í meistaraflokki kvenna og hefst hann klukkan 20.00. Þetta er jafnframt síðasti leikurinn í deildarkeppni kvenna á þessu keppnistímabili. Úrslitin í deildarkeppni kvenna eru fyrir nokkru ráðin en leikurinn er góður undirbúning fyrir kvennamótshelgi sem fyrirhuguð er norðan heiða um komandi helgi.

HH