Leikir kvöldsins


Úr leik Ynja og Ásynja                                                                                                    Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Leikir kvöldsins eru tveir að þessu sinni og fara þeir fram annarsvegar í Egilshöll og hinsvegar í skautahöllinni á Akureyri.

Björninn tekur á móti SR Fálkum á nýhefluðu svelli í Egilshöllinni og hefst leikurinn klukkan 19.30. Bjarnarmenn hafa farið vel af stað þetta árið og eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Bjarnarmenn munu að öllum líkindum mæta með sitt sterkasta lið til leiks en ekki er vitað um nein meiðsli í þeirra herbúðum. Ekki er hinsvegar vitað hvernig SR Fálkar verða skipaðir en fróðlegt verður að sjá hvernig þeim gengur að eiga við sterkt Bjarnarliðið.

Í skautahöllinni á Akureyri mætast Ásynjur og Ynjur og hefst sá leikur klukkan 20.30. Leikir þessara liða hafa oft verið bráðskemmtilegir og spennandi og oftar en ekki hafa úrslitin ráðist á síðustu sekúndum leiksins eða með marki í framlengingu. Það er því full ástæða til að mæta í höllina og sjá liðin reyna með sér. 

HH