Leikir kvöldsins

Leikir kvöldsins eru tveir að þessu sinni og báðir eru þeir í meistaraflokki karla.

Í Egilshöll mætast klukkan 19.30 lið Bjarnarins og Húna en klukkutíma síðar mætast í skautahöllinni á Akureyri lið Víkinga og Jötna. Stigin þrjú sem í boði eru fyrir Víkinga og Björninn eru mikilvæg í baráttu liðanna við að tryggja sér sæti í úrslitum gegn Skautafélagi Reykjavíkur en úrslitin eiga samkvæmt dagskrá að hefjast miðvikudaginn 7. mars. 

HH