Leikir kvöldsins

Í kvöld leika Skautafélag Reykjavíkur og Björninn í meistaraflokki karla og fer leikurinn fram í Laugardalnum og hefst klukkan 20.00. Ekki er annað vitað en að allir leikmenn séu heilir en einhver flensa hefur þó verið að hrjá einstaka leikmann. Í lið Bjarnarmanna ætti að bætast fyrir leikinn Brynjar Þórðarson sem staddur var erlendis í byrjun tímabils en Daði Örn Heimisson verður hinsvegar fjarri góðu gamni vegna leikbanns. Liðin hafa leikið einu sinni áður á tímabilinu og þá fóru SR-ingar með sigur af hólmi gerðu 7 mörk gegn 4 mörkum Bjarnarmanna.

Það er hinsvegar ekki á hverjum degi sem leikið er á Akureyri í miðri viku en það gerist í kvöld. Þá mætast eldra og yngra lið SA í kvennaflokki. Ört hefur fjölgað í kvennahokkíinu fyrir norðan þótt nú um stundir sjái náttúran til þess að sumir eldri leikmennirnir nái ekki að spila. Leikurinn fyrir norðan hefst klukkan 19.00

Myndina tók Ómar Þór Edvardsson.

HH