Leikir kvöldsins

Mynd: Elvar Freyr Pálsson
Mynd: Elvar Freyr Pálsson

Leikir kvöldsins eru tveir að þessu sinni og fara þeir fram norðan og sunnan heiða.

Á Akureyri mætast Ynjur og Ásynjur í meistaraflokki kvenna og hefst leikurinn klukkan 19.30. Liðin hafa mæst einusinni áður og þá unnu Ásynjur nokkuð öruggan 6 - 0 sigur þrátt fyrir að markmaður Ynja, Elise Valjots ætti góðan dag í markinu. Ásynjur hafa tveggja stiga forskot á Ynjur en bæði liðin hafa leikið þrjá leiki. 

Í Laugardalnum mætast svo lið Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins í 2. flokki og hefst sá leikur klukkan 20.00. Síðast þegar liðin mættust voru skoruð fjórtán mörk þannig að ef eitthvað svipað verður upp á teningnum í kvöld ætti fjörið að vera ærið.

HH