Leikir kvöldsins

Leikir kvöldsins fara að þessu sinni fram á Akureyri og í Egilshöllinni og hefjast báðir klukkan 19.30

Á Akureyri mætast Ynjur og Ásynjur í meistaraflokki kvenna. Ynjur hafa fram að þessu leikið þrjá leiki og unnið þá alla. Ásynjur hafa hinsvega aðeins leikið einn leik sem þær unnu. Leikmannahópurinn hjá norðanmönnum í kvennaflokki er ágætlega stór og því á að vera hægt að stilla upp tveimur góðum liðum í leiknum. 

Í Egilshöllinni leika  Björninn og Húnar. Bjarnarmenn töpuðu sínum fyrsta leik í síðustu viku þegar þeir lágu gegn Víkingum í spennandi leik. Rétt einsog hjá konunum hafa Bjarnarmenn úr ágætlega stórum hóp að spila og því ætti að vera hægt að stilla upp tveimur góðum liðum. 

HH