Leikir helgarinnar.

Fyrsti leikurinn í kvennahokkíinu fór fram um helgina en þá komu SA-stúlkur suður og léku við Björninn. Leikurinn endaði með því að Björninn bar sigur úr býtum en Bjarnarstelpur skoruðu 6 mörk gegn einu marki norðanstúlkna. Lotur fóru 2 - 0, 3 - 0 og 1 - 1.

Mörk/stoðsendingar Björninn:

Steinunn Sigurgeirsdóttir 3/1
Flosrún Vaka 2/4
Elva Hjálmarsdóttir 1/0
Alissa Vilmundardóttir 0/1
Hanna Rut Heimisdóttir 0/1

Brottvísanir: 6 mín.

Mörk/stoðsendingar SA:

Sarah Smiley 1/0
Hrund Thorlacius 0/1

Brottvísanir: 6 mín.

Sömu lið léku einni í 2. fl og þar báru SA menn sigur úr býtum skoruðu 4 mörk gegn 3 mörkum Bjarnardrengja.

HH