Leikir helgarinnar.

SR-ingar taka á móti SA-mönnum í meistarflokki karla um helgina. Leiknir verða tveir leikir, annarsvegar í kvöld klukkan 19.00 og hinsvegar í fyrramálið klukkan 10. SA-menn galopnuðu deildina með því að vinna SR-inga í síðasta leik 4 - 2 fyrir norðan og hefur maður heyrt að þar hafi verið leikinn einn skemmtilegasti íshokkíleikur síðustu ára. ÍHÍ stendur fyrir komu dómara frá Kanada sem mun halda námskeið í dag og gegna síðan eftirlitsdómarastarfi á öllum leikjum helgarinnar. Þess má geta að þriðji flokkur sömu liða mun leika strax á eftir leiknum í meistaraflokki í kvöld. Mætum og hvetjum okkar menn.

HH