Leikir helgarinnar.

Einn leikur fer fram í meistaraflokki karla um helgina en þá mætast SA og SR í leik fyrir norðan, leikurinn fer fram á laugardaginn og hefst klukkan 19.15. SR menn hafa komið sér þægilega fyrir á toppi deildarinnar en vilja sjálfsagt tryggja sig enn betur með sigri á norðanmönnum. Einhver vandræði ku vera í vörn SR-inga en Todd Simpson er í leikbanni eftir MP í síðasta leik. Akureyringar náðu hinsvegar að landa sigri gegn Birninum í síðasta leik og vilja sjálfsagt fara að sjá sig fyrir ofan þá á stigatöflunni áður en langt um líður. Semsagt hægt að lofa spennandi leik á laugardag klukkan 19.15 í Skautahöllinni á Akureyri.

Við viljum líka benda á að um helgina fer fram Brynjumótið á Akureyri. Þar leiða saman hesta sína krakkar úr fimmta, sjötta og sjöunda flokk, þ.e.a.s. framtíðin í íslensku íshokkí. Dagskránna á Brynjumótinu má sjá hér

HH