Leikir helgarinnar - úrslit

Um helgina voru tveir leikir í 2. flokki. Í bæði skiptin voru það lið SR og SA sem áttust við.

Laugardagsleikurinn endaði með sigri SR-inga en þeir unnu leikinn með 4 mörkum gegn 3 mörkum norðanmanna. Leikurinn var ágætlega skemmtilegur á að horfa og sérstaklega færðist fjör í leikinn þegar norðanmann skoruðu þriðja markið sitt og reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn.

SR mörk/stoðsendingar:

Þorsteinn Björnsson 1/1
Pétur Maack 1/0
Andri Þór Guðlaugssin 1/0
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Steinar Páll Veigarsson 0/1

Brottrekstrar SR: 22 mín. Fjöldi 6

SA mörk/stoðsendingar:

Birkir Árnason 1/0
Jón Heiðar Sigmundsson 1/0
Orri Blöndal 1/0
Einar Guðni Valentine 0/1

Brottrekstrar SA: 36 mín. Fjöldi 8

Seinni leikurinn sem fór fram á sunnudagsmorgninum endaði hinsvegar með sigri SA-manna sem skoruðu 4 mörk gegn 2 mörkum heimamanna. Sigurinn var nokkuð öruggur og vonandi að þeir leikmenn sem léku um helgina, og eru á leið til Kína um næstu helgi, nái einnig að sýna góða takta þar.

Mörk/stoðsendingar SR:

Egill Þormóðsson 1/1
Ragnar Kristjánsson 1/0

Brottrekstrar SR: 10 mín. Fjöldi 5

SA mörk/stoðsendingar:

Einar Guðni Valentine 2/1
Sigurður Árnason 1/0
Birkir Árnason 1/0
Steinar Grettisson 0/2
Sigmundur Sveinsson 0/1

Brottrekstrar SA: 8 mín. Fjöldi 4

HH