Leikir helgarinnar og félagaskipti

Gengið var í dag frá félagaskiptum fyrir Berglindi Ólafsdóttur frá Skautafélagi Reykjavíkur til Bjarnarins, Þar sem leikmaðurinn lék ekki á síðustu leiktíð er heimild í reglugerðum ÍHÍ nr10 grein 4 að meðhöndla beiðni um félagaskipti eins og þau væru utan leiktímabils. Félagaskiptagjald hefur verið greitt, og gamla félag leikmannsins staðfest skuldleysi hans. Öllum skilyrðum fyrir félagaskiptin er því fullnægt. ÍHÍ staðfestir því hér með leikheimild fyrir ofangreindan leikmann með liði Bjarnarins.

Um helgina verða eftirfarandi leikir:

Laugardaginn 19.11.2005 kl. 16:00 meistaraflokkur kvenna  Björninn - SA

Laugardaginn 19.11.2005 3. fl. drengja Björninn -SA  strax að loknum leik í mfl. kvenna.


Sunnudaginn 20.11.2005 kl.  09:00 meistaraflokkur kvenna  Björninn - SA