Leikir helgarinnar

Um helgina fara fram tveir leikir í Hertz-deild kvenna. Skautafélag Reykjavíkur tekur á móti Skautafélagi Akureyrar í tvíhöfða. Fyrri leikurinn er föstudagskvöldið 28. janúar og hefst leikur kl 19:45. Seinni leikurinn fer fram laugardagsmorgun kl 10:00. 

Á laugardag mun svo Fjölnir taka á móti Skautafélagi Akureyrar í Hertz-deild karla. Leikur hefst í Egilshöll kl 16:45.