Leikir helgarinnar

Íslandsmót U14 hefst um helgina í Skautahöllinni í Laugardal.  Leiknir verða 10 leikir um helgina og fyrsti leikur hefst kl 09:10. Nánari dagskrá og upplýsingar má finna á facebook síðu Skautafélags Reykjavíkur, ýta hér.

Fyrsti leikur í Hertz-deild kvenna verður í Egilshöll, laugardaginn 14. september og hefst leikur kl 16:30. Viðburð má finna hér.

Tveir leikir verða svo í Íslandsmóti U18 og verða þeir báðir í Egilshöll. Laugardaginn 14. september kl 18:50 og sunnudaginn 15. september kl 10:30.