Leikir helgarinnar

Nú er að koma að því að íslandsmótið hefjist í meistaraflokki karla en fyrsti leikurinn er á morgun laugardag. Í honum leiða saman hesta sína lið Skautafélags Akureyrar annarsvegar og Bjarnarins hinsvegar. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og er heimaleikur þeirra norðanmanna og því fer leikurinn að sjálfsögðu fram í Skautahöllinni á Akureyri. Liðin hafa lítið breyst frá síðasta ári en þó má geta þess að Dennis Hedström landsliðsmarkvörður er kominn í mark þeirra Bjarnarmanna og Ingvar Þór Jónsson er kominn heim og leikur með norðanmönnum þennan veturinn.

Þess má geta að strax að þessum leik loknum leikur 3. flokkur sömu liða en bæði liðin hafa unnið fyrsta leik sinn á þessu tímabili.

Ekki er enn vitað hvort leikurinn verður í beinni útsendingu hérna á netinu. ÍHÍ stendur til boða tvö kerfi sem hægt er að nota í þessháttar útsendingar. Mjög fljótlega verður farið yfir hvernig þessum málum verður háttað og þá geta hokkíáhugamenn vonandi treyst á netlýsingar frá leikjum.

HH