Leikir helgarinnar

Leikir helgarinnar um helgina eru báðir á Akureyri. Annars vegar mætast SA og Björninn í kvennaflokki í sínum fyrsta leik þessa tímabils. Að þeim leik lokhum eða um klukkan 20.00 munu Narfinn og SA spila. Einsog  í fyrri leikjum verður upplýsingakerfið keyrt en vegna þess að danska deildin er að hefjast þessa helgi hefur umsjónamaður kerfisins lítið mátt vera að þvi að sinna okkur. Við vonumst samt að smátt og smátt komi við lagfæringum inn.

Á myndinni má m.a. sjá Helga Pál Þórisson Narfamann en líklegast tekur hann sér frí frá leiknum á morgun. Helgi varð nefnilega þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast 15 marka dóttur í nótt og óskum við honum og frúnni innilega til hamingju með erfingjann.

Mynd: Ólafur Ragnar Ósvaldsson

HH