Leikir framundan

Í kvöld eigast við lið Skautafélags Reykjavíkur og Bjarnarins i meistaraflokki karla. Leikurinn er í Laugardalnum og hefst klukkan 20.30. Þar sem orðið er ljóst að það verða Skautafélag Akureyrar og Skautafélag Reykjavíkur sem leika til úrslita að þessu sinni mætti ætla að menn fari rólega í leikinn í kvöld en nokkuð er víst að SR-ingar munu nota leikinn sem hluta af undirbúning sínum fyrir komandi úrslitakeppni. Því er ekki ólíklegt að þeir muni keyra á fullu frá fyrstu mínútu og láta vel finna fyrir sér.

Einsog sést í rammanum okkar hérna til hliðar þá er mikið um að vera um næstu helgi. 5 - 7 flokks mót í Egilshöll, æfingaleikir hjá kvennalandsliðinu og spennandi leikir í 2. flokki. Meira um það síðar.

HH