Leikheimildir


ÍHÍ staðfestir leikheimildir fyrir eftirfarandi leikmenn:

Fyrir Björninn, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 31.  janúar (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa eftirfarandi leikmönnum:

Gunnar Guðmundsson
Úlfar Jón Andrésson
Róbert Freyr Pálsson

Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 2. mars 2012. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gilda leikheimildirnar. 

Leikheimildirnar eru gefnar út á grundvelli greinar 7.3 í reglugerð nr. 10 um félagaskipti.

HH