Leikheimildir

Óskað hefur verið eftir félagaskiptum frá Birninum til Narfans fyrir eftirtalda leikmenn:

Búa Bjarmar Aðalsteinsson
Elvar Frey Hafsteinsson 

Björninn hefur staðfest skuldleysi leikmannanna við sitt gamla félag og félagaskiptagjöld  hafa verið greidd til ÍHÍ. Leikmennirnir eru því löglegir með sínu nýja félagi.

Sótt hefur verið um leikheimild fyrir Jon Silnes. Skráningargjald hefur verið greitt fyrir Jon Silnes ásamt því að ríkisborgararéttur hans hefur verið staðfestur og telst leikmaðurinn því löglegur með Narfanum.