Leikheimild.

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann:

Fyrir Skautafélag Reykjavíkur, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 16. október. (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Petr Krivanek (Czech). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 16. nóvember 2006. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

Fyrir hönd ÍHÍ,

Hallmundur Hallgrímsson