Leikheimild fyrir Ingvar Þór Jónsson

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann

Fyrir Skautafélag Reykjavíkur, leikheimild til handa Ingvari Þór Jónssyni. Ingvar hefur það sem af er tímabili leikið með Galdsaxe Bears í Dönsku fyrstu deildinni en hefur nú ákveðið að snúa heim og leika með sínu gamla liði. IIHF hefur staðfest flutning leikmannsins og SR hefur greitt inn á reikning ÍHÍ kostnaðinn við flutninginn ásamt félagaskiptagjaldi. Það staðfestist því hér með að Ingvar Þór Jónsson er löglegur leikmaður með Skautafélagi Reykjavíkur frá deginum í dag 3. apríl 2006 að telja.

 
Viðar Garðarsson

fom. ÍHÍ