Leikheimild fyrir Birkir Árnason

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild til handa Birki Árnasyni. Birkir hefur það sem af er tímabili leikið með Forshaga IF í Svíþjóð en hefur nú ákveðið að snúa heim og leika með sínu  gamla liði. Sænska Íshokkísambandið og IIHF hafa bæði staðfest flutning leikmannsins og SA hefur greitt inn á reikning ÍHÍ kostnaðinn við flutninginn ásamt félagaskiptagjaldi. Það staðfestist því hér með að Birkir Árnason er löglegur leikmaður með Skautafélagi Akureyrar frá deginum í dag 3. desember 2005 að telja.

 
Viðar Garðarsson

fom. ÍHÍ