Leikheimild fyrir Alexi Alalahti (fin)

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann

Fyrir Björninn, leikheimild sem gildir í 30 daga eða til 14 október. (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Alexi Alalahti (FIN). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 14. október 2006. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum um skil og frágang á frumritum pappíra gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

Fyrir hönd ÍHÍ,

Viðar Garðarsson