Leikheimild/Félagaskipti

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:
Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 25. september (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Michael Boudreau. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 25. október 2008. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.
Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

Óskað hefur verið eftir félagaskiptum fyrir Aron Leví Stefánsson frá Birninum til Skautafélags Reykjavíkur. Skuldleysi leikmannsins við sitt gamla félag hefur verið staðfest og félagskiptagjald hefur verið greitt til ÍHÍ. Aron Leví telst því löglegur leikmaður með Skautafélagi Reykjavíkur.



HH