Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann:

Fyrir Skautafélag Reykjavíkur, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 12. janúar (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Agli Þormóðssyni. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 12. febrúar 2010. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin í ótakmarkaðan tíma.

HH