Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 13. október 2009 (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Söru Smiley. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 13. nóvember 2009. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.