Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 11. janúar (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Rúnari F. Rúnarssyni. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 11. febrúar 2009. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.
Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin ótímabundið.

Félagaskiptin fara fram á grundvelli 10.7.3 í reglugerð um félagaskipti.

Endanleg félagaskipti fyrir Orra Blöndal til Skautafélags Akureyrar hafa verið staðfest.

HH