Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 19. nóvember 2008 (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Orra Blöndal. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 19. desember 2008. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

Leikheimildin er gefin út á grundvelli greinar 10.7.3 í reglugerð 10 um félagaskipti.

HH