Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 7. október (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Söru Shantz-Smiley. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 7. nóvember 2008. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

HH