Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmann:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 16. nóvember (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Jakub Koci. Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 16. desember 2007. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.

Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gilda leikheimildirnar út keppnistímabilið.

HH