Leikheimild

ÍHÍ staðfestir leikheimild fyrir eftirfarandi leikmenn:

Fyrir Skautafélag Akureyrar, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 2. nóvember. (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Tomas Fiala(Czech). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 2. desember 2006. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.    
Fyrir Skautafélagið Björninn, leikheimild sem gildir í 30 daga frá og með 3. nóvember. (samkvæmt félagaskiptareglu IIHF) til handa Marcin Diakow(Poland). Tryggingargjald hefur verið greitt inn á reikning ÍHÍ. Útgefið leikleyfi frá IIHF gildir í 30 daga, innan þess tíma verða frumrit pappíra að hafa borist öllum málsaðilum ella fellur leikheimild þessi niður sjálfkrafa þann 3. desember 2006. ÍHÍ mun staðfesta endanlega afgreiðslu þegar frumrit hafa skilað sér á alla áfangastaði.
Að uppfylltum áðurnefndum skilyrðum, um skil og frágang á frumritum pappíra, gildir leikheimildin út keppnistímabilið.

IIHF hefur staðfest að endanleg leikheimild hafi verið gefin út fyrir Söru Smiley (SA)

Fyrir hönd ÍHÍ,

Hallmundur Hallgrímsson