Leikbann á Matthias Nordin

Í leik Bjarnarins og SR 24.01.2006 hlaut leikmaður Bjarnarins númer 77 Mathias Nordin Leikdóm (MP) fyrir að skalla andstæðing. Það staðfestist hér með að leikmaðurinn fær eins leiks bann í samræmi við leikreglur sem hann þarf að taka út í næsta leik sem að lið hans leikur.