Leik í U22 í Egilshöll í dag frestað - uppfært

Leik Húna og Jötna sem settur var klukkan 16:45 í dag, hefur verið frestað  og einnig leik sömu liða sem settur var klukkan 09:45 á morgun sunnudag.
Þrátt fyrir að veður hafi tafið brottför fyrr í morgun frá Akureyri, og allt útlit hafi verið fyrir að leikurinn gæti verið síðar í kvöld.  Var að koma í ljós alvarleg bilun í frystikerfi Egilshallar þannig að ákveðið var að fresta þessum tveimur leikjum. Mótanefnd sambandsins fær það verkefni að finna nýjar dagsetningar.