Nú fyrr á árinu kynnti IIHF nýtt námsefni fyrir þjálfara yngstu aldurshópanna sem gengur undir nafninu Learn To Play (LTP). Sarah Smiley og Andri Magnússon fóru á vegum ÍHÍ og kynntu sér þetta uppfærða efni. Þau eru bæði vottuð sem LTP-leiðbeinendur (Instructors) hjá Alþjóða íshokkísambandinu. Sarah og Andri hafa nú útbúið fræðsluefni ætlað íshokkíþjálfurum úr öllum félögum og verða námskeið fyrir þessa þjálfara í Reykjavík 4.-6. september og á Akureyri 11.-13. sept. Lágmarksaldur á þessi námskeið er 14 ár.
ÍHÍ mun síðan birta á heimasíðu sinni nöfn þeirra þjálfara sem sækja þetta námskeið og fyrir hvaða félagslið þeir starfa, til upplýsinga fyrir foreldra þeirra barna sem æfa íshokkí.
Námskeiðið er frítt en nauðsynlegt er að skrá þátttöku í gegnum hlekkinn hér að neðan.
https://forms.gle/EdZRUpVoGiZzqYgh7