Landsliðsþjálfarar

Unnið hefur verið að því að undanförnu að finna þjálfara fyrir öll landslið Íslands og nú í hádeginu kom landsliðsnefnd saman til fundar og samþykkti ráðningu eftirfarandi þjálfara:

Sveinn Björnsson - aðallandslið karla.

Sarah Smiley - aðallandslið kvenna.

Jukka Iso-Anttila - landsliðþjálfari U20 karlaliðs.

Sergei Zak - landsliðsþjálfari U18 karlaliðs.

Þjálfarnir munu nú hefja undirbúning og velja sér aðstoðarþjálfara.

Ed Maggiacomo sem þjálfað hefur landslið á vegum ÍHÍ síðastliðin ár gaf ekki kost á sér að þessu sinni. Fyrir hönd ÍHÍ vil ég þakka honum vel unnin störf.

Hallmundur Hallgrímsson