Landsliðsæfingabúðum FRESTAÐ

Eins og menn hafa orðið áþreifanlega varir við er veðrið á landinu ekkert sérstaklega skemmtilegt. Ferðinni norður hefur verið frestað fram til morguns. Síðar í dag munum við taka stöðuna á málunum í samráði við rútufyrirtækið. Við getum því ekki annað gert en að vitna í hið íslenska þjóðlag (ferskeytla) en þar segir í fyrstu tveimur línunum:

Nú er úti veður vont
verður allt að klessu.

HH