Landsliðsæfingabúðir

Nú standa yfir landsliðsæfingabúðir fyrir U20 og kvennaliðið á Akureyri.  Ed Maggiacomo hefur séð um undirbúning æfingabúðanna en Sarah Smiley verður honum til halds og trausts.  Þetta eru aðrar æfingabúðir U20 ára liðsins og mun þjálfarinn velja endanlegan hóp nú fljótlega eftir helgi, en skammt er nú til móts eða rétt um tvær vikur.
 
Þetta eru hins vegar fyrstu æfingabúðir kvennaliðsins eða fyrstu úrtöku, en hópurinn verður minnkaður nú strax eftir fyrstu æfingarnar.  Vegna landsliðshelgarinnar verða engir leikir um helgina.